laugardagur, desember 24, 2005
Jo-hólin jo-hólin....... a-halls staðaaar. Með jólagleði og gja-ha-firnar.
Jólaskapið er officially mætt á svæðið. Nóa konfektið er komið í skálina og rollan er byrjuð á óhóflegri neyslu fyrrnefnds konfekts, skv. föstum árlegum vana. Jólaniðurgangurinn mun svo mæta á svæðið í fyrramálið í kjölfar téðrar ofneyslu, mér og sambýlisfólki mínu til mikils yndisauka. Julen er så dejlig....
::