föstudagur, maí 19, 2006
78Kúkapúkaprófið er loksins búið. Get farið að snúa mér aftur að alvöru lífsins, þ.e. júróvísjón. Ætla að sletta ærlega (haha pun) úr klaufunum eða jafnvel í og á klaufarnar líka, í kvöld og fara síðan á intervefinn pissfull og klæmast í ókunnugu fólki (nei já bara segi sonna..)
En júróvísjónið já. Ég að sjálfssögðu kaus Finnland, enda eina landið með viti þetta árið. Það er kannski helst Bosnía Herzegovína með rólegu ballöðuna sem kemst næst Finnum í hlustinennileika. Er eiginlega bara fegin að Silvía hafi ekki komist áfram. Er búin að fá meira en ógeð af henni í bili. Silvía er æði á íslensku. Hún er bara ekki að gera sig sem international súperstjarna. Hún er komin dáldið langt frá gellunni sem hún var fyrst í þáttunum, gellunni sem ég fílaði svo heitt. En það er bara mín skoðun.
Mér fannst það samt áhugavert að sjá tvöfalda siðgæðið sem fyrirfinnst í siðvandri Evrópunni. Myndbandið við lag Finnanna var sums staðar ekki sýnt því þau þóttu of scary. Einnig komu fram einhverjar upphrópanir um supposed djöfladýrkun og geitarfórnir. Eins og Simmi kom svo skemmtilega vel að orði, þá er þetta allt saman bara skemmtiatriði, og frekar hallhærislegt í þokkabót. Bara fullorðið fólk í latexgöllum að þykjast að vera hardcore. Mér finnst það ógó fyndið. Það er ekki eins og textinn sjálfur hjá Lordi innihaldi skemmtifrasa eins og "I drink satan's blood" eða "Sacrifice a virgin at the altar of hell". Ég gæti alveg bekennt ásakanirnar þá.... en hard rock halelúja... plís fólk.
Silvía má heldur ekki segja "fuck" fyrir framan evrópu. Það er svo dónó og gæti sært blygðunarkennd milljóna manna.
En það er allt í lagi að láta meira en hálfnakta 17 ára stelpu raula í míkrófón uppá sviði á meðan hún framkvæmir kynferðislegar athafnir með samdönsurum sínum. Það er náttúrulega bara allt í gúddí með það. Ok, gellurnar eru reyndar ekki að ríða uppá sviði en það er aðeins formsatriði í flestum þessarra atriða að skella súlum uppá svið.
Ef þetta er í lagi. Af hverju má silvía ekki segja "fuck" ef henni sýnist svo?
jæjah... 4 og hálfur tími í að fyrsti bjór verður opnaður. Skál krúttin mín!
::