fimmtudagur, desember 01, 2005
Fór í bíó..... á Saw sem er sálfræðitryllir með mjög mjög grótesk sjónrænum áreitum. Orða þetta svona til að skemmileggja ekki fyrir þeim sem gætu verið nógu klikkaðir að fara á hana. Fékk samúðarverki og mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Segi ekki meir. Fannst samt dálítið fyndið að sjá hvað það var mikið af pörum á þessari mynd að haldast í hendur og dúlla saman nefjum. "Elskan, eigum við að fara saman í rómantíska bíóferð?" "Já endilega, förum á nýja sækólimlestingarþrillerinn"
Lærdómurinn gengur ekki vel. Mér reynist erfitt að halda mér við efnið. Held að þessi týpíska jólatilhlökkun sé að trufla. Setti Jackson 5 jóladiskinn minn í spilarann í fyrsta skipti í gær. Tók eftir því að það var ekkert rosalega sniðug ákvörðun þar sem að það kallaði á að kíkja í Blómaval á jólaskrautið og horfa á jólamynd. Varð ekkert mikið úr lærdómnum þann daginn. Annars vantar mig bara sjálfsagagenið. Ef einhver hefur lítið notaðan sjálfsaga til sölu fyrir lítinn pjéning þá er ég alveg til í að gera díl
::